Handbolti

„Ég held að við getum al­veg staðið í Þjóð­verjum“

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Berglind Þorsteinsdóttir átti stóran þátt í fyrsta stórmótasigri Íslands. 
Berglind Þorsteinsdóttir átti stóran þátt í fyrsta stórmótasigri Íslands.  Vísir/Viktor Freyr

„Vá. Geggjað að vera partur af þessu og ótrúlega gaman að klára þetta,“ sagði Berglind Þorsteinsdóttir innt eftir viðbrögðum við fyrsta stórmótasigri íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Varnarvinna hennar spilaði stóran þátt í 27-24 sigri gegn Úkraínu á Evrópumótinu.

„Við horfðum algjörlega á þennan leik fyrir mót og ætluðum alltaf að taka hann. Og eftir frábæran síðasta leik vorum við alveg klárar á því að við gætum þetta. Lögðum bara allt í þetta,“ hélt hún svo áfram.

Erfitt að spila heilan hálfleik sex á sjö

Ísland var með mikla yfirburði í fyrri hálfleik og útlit var fyrir stórsigur en Úkraínu veitti meiri mótspyrnu í seinni hálfleik, án þess þó að komast alveg upp að íslenska liðinu.

„Seinni hálfleikur var aðeins of spennandi, svolítið erfitt að spila sjö á móti sex í heilan hálfleik. Það var smá kúnst en við náðum að klára þetta vel. Þó þetta hafi alveg verið smá óþægilegt.“

Gaman í vörninni

Berglind hafði mikið að gera allan leikinn og þurfti að glíma við gríðarlega stóra og sterka leikmenn.

„Þær eru lúmskar. Sérstaklega línumaðurinn, hún er alveg nautsterk.“

Hún hafði einnig það hlutverk, þegar Ísland fór í 5—1 vörn, að stíga upp og trufla sendingarleiðirnar.

„Mér finnst það ótrúlega gaman. Maður er svona aðeins að stríða þeim en má samt ekki brjóta. Maður er svona að veiða þær í færin sem maður vill fá þær í. Mér finnst það mjög gaman en það er svolítið öðruvísi að vera þar, veit stundum ekki alveg hvar ég á að standa.“

Geta alveg staðið í Þjóðverjum

Framundan er úrslitaleikur um sæti í milliriðli gegn Þýskalandi á þriðjudag og Berglind er bjartsýn.

„Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum. Já, ég hef fulla trú á okkur í þeim leik,“ sagði hún að lokum.

Klippa: Berglind Þorsteinsdóttir eftir fyrsta stórmótasigur Íslands

Viðtalið við Berglindi, sem Valur Páll Eiríksson tók, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×