Körfubolti

Pavel um endur­komu Borche: „Rétti maðurinn á þessum tíma­punkti“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Borche Ilievski er í miklum metum hjá ÍR-ingum eftir að hafa gert frábæra hluti með liðið fyrir nokkrum árum. ÍR varð meðal annars nálægt því að verða Íslandsmeistari undir hans stjórn vorið 2019.
Borche Ilievski er í miklum metum hjá ÍR-ingum eftir að hafa gert frábæra hluti með liðið fyrir nokkrum árum. ÍR varð meðal annars nálægt því að verða Íslandsmeistari undir hans stjórn vorið 2019. vísir/vilhelm

Sérfræðingar Bónus Körfuboltakvölds hrósuðu ÍR-ingum eftir að þeir unnu Íslandsmeistara Valsmanna í fyrsta leiknum undir stjórn Borche Ilievski.

Borchse sneri aftur til ÍR á dögunum og tók í annað sinn við liðinu. Hann fór með það alla leið í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn fyrir fimm árum. Borche stýrði ÍR í fyrsta sinn eftir endurkomuna þegar liðið sigraði Val, 84-83, á föstudaginn.

ÍR-ingar töpuðu fyrstu sex leikjum sínum í Bónus deild karla en hafa nú unnið tvo leiki í röð. Jón Halldór Eðvaldsson segir mikinn mun á framlagi og vinnusemi leikmanna ÍR og Hauka sem hafa enn ekki unnið leik í deildinni.

„Ég væri til í að vera með skiptan skjá og sýna framlagið sem er í gangi,“ sagði Jón Halldór og Stefán Árni Pálsson benti svo á að stuðningsmenn ÍR hefðu ærst úr fögnuði. Borche fór og fagnaði með þeim beint eftir leikinn.

„Mér er skítsama um þessa áhorfendur. Þetta snýst ekkert um þá. Þetta snýst um það sem þeir eru að leggja á gólfið. Hefurðu séð Mate (Dalmay, fyrrverandi þjálfara Hauka) fara upp í stúku? Hefurðu séð þessa ákefð? Alls ekki. Þetta er munurinn. Ákefðin sem er í gangi. Hæfileikarnir í ÍR-liðinu eru ekkert meiri en í Haukaliðinu að mínu mati en þeir eru að gefa miklu meira í þetta,“ sagði Jón Halldór.

Klippa: Bónus Körfuboltakvöld - Umræða um ÍR

Pavel Ermolinskij telur að endurkoma Borche muni hjálpa ÍR-ingum í baráttunni sem framundan er.

„Þetta er maður sem er löngu búinn að sanna sig í þessari deild og búinn að gera vel. Hann er að koma inn í erfiðar aðstæður en það er alveg hægt að færa mjög sterk rök fyrir því að þetta sé rétti maðurinn á þessum tímapunkti út af því að ÍR-ingar eiga góðar minningar af honum eins og þessa ferð í úrslitin. Það er mikil trú og þetta skapar smá jákvæðni í félaginu því þú manst eftir þeim tímum,“ sagði Pavel.

„Hann sýnir líka þarna að honum er alls ekki sama. Hann er strax byrjaður að tengja við áhorfendur og fá alla með. Hvað sem Borche ætlar að gera með liðið, hvernig það á að spila, einhverja taktík og eitthvað; aðal leiðin fyrir ÍR til að vinna og halda sér í deildinni er þessi stemmning sem er þarna. Án hennar eiga þeir ekki séns. Þeir þurfa að gera það sem þeir geta til að ýta undir þetta.“

Næsti leikur ÍR er gegn hinum nýliðunum, KR, á Meistaravöllum á fimmtudaginn.

Innslagið úr Bónus Körfuboltakvöldi má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×