Sanchez skoraði í öruggum sigri Síle Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. júní 2019 07:00 Sanchez fagnar marki sínu í nótt vísir/getty Alexis Sanchez og félagar í landsliði Síle unnu Japani örugglega í fyrsta leik sínum í Suður-Ameríkukeppninni í fótbolta í nótt. Síle er ríkjandi meistari og byrjaði titilvörnina af krafti gegn gestaliði Japan. Fyrsta mark leiksins kom undir lok fyrri hálfleiks þegar miðjumaðurinn Erick Pulgar skallaði boltanum í netið og tryggði Síle forystuna í hálfleik. Á 54. mínútu skoraði Eduardo Vargas annað mark Síle og nú hefur hann skorað í fjórum lokakeppnum stórmóta í röð fyrir Síle. Manchester United maðurinn Sanchez skoraði á 82. mínútu og lagði upp annað mark Vargas aðeins mínútu síðar. Þetta var fyrsta fótboltamarkið sem Sanchez skorar eftir fimm mánaða markaþurrð. Lokatölur uruð 4-0 og sigur Síle öruggur gegn ungu liði Japan. Copa América Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti