Bale byrjaði í fyrsta sinn eftir endurkomuna og Tottenham vann | Öll úrslit kvöldsins Anton Ingi Leifsson skrifar 22. október 2020 20:57 Bale og Vincius fagna í kvöld en þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Wales-verjans eftir endurkomuna. Tottenham Hotspur FC/Tottenham Hotspur FC/Getty Images) Tottenham og Leicester byrjuðu bæði riðlakeppni Evrópudeildarinnar á 3-0 sigrum. Tottenham hafði betur gegn LASK og Leicester Zorya en bæði lið spiluðu á heimavelli. Gareth Bale var í fyrsta sinn í byrjunarliði Tottenham eftir endurkomuna til félagsins. Lucas Moura skoraði fyrsta markið á 18. mínútu og á 27. mínútu varð staðan 2-0 eftir sjálfsmark Andres Andrade. Heung-Min Son kom inn af bekknum, fyrir einmitt Gareth Bale á 62. mínútu, og hann skoraði þriðja markið á 84. mínútu. Lokatölur 3-0. Spurs have now scored 19 goals across their last four matches: Free-scoring form. pic.twitter.com/zZ53BJjnRT— Squawka Football (@Squawka) October 22, 2020 James Maddison kom Leicster yfir á 29. mínútu gegn Zorya og skömmu fyrir hlé tvöfaldaði Harvey Barnes forystuna. Það var svo Kelechi Iheanacho sem skoraði þriðja og síðasta mark leiksins á 67. mínútu. Lokatölur 3-0. Hörður Björgvin Magnússon spilaði allan leikinn fyrir CSKA Moskvu sem gerði 1-1 jafntefli við Wolfsberger á útivelli. Arnór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi CSKA vegna meiðsla en í riðlinum eru einnig Dinamo Zagreb og Feyenoord. Öll úrslit kvöldsins: G-riðill: Leicester - Zorya 3-0 Braga - AEK Aþena 3-0 H-riðill: Celtic - AC Milan 1-3 Sparta Prague - Lille 1-4 I-riðill: Maccabi Tel AViv - Qarabag 1-0 Villareal - Sivasspor 5-3 J-riðill: Ludogorets - Royal Antwerp 1-2 Tottenham - LASK 3-0 K-riðill: Dinamo Zagreb - Feyenoord 0-0 Wolfsberger - CSKA Moskva 1-1 L-riðill: Hoffenheima - Crvena Zvezda 2-0 Slovan Liberec - Gent 1-0 Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti