Ég barðist við tárin á pallinum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. desember 2015 06:00 Eygló með hinum verðlaunahöfunum í 100 m baksundi í gær. Vísir/AFP Eygló Ósk Gústafsdóttir braut blað í íþróttasögu Íslands þegar hún vann til verðlauna á stórmóti í sundi, fyrst íslenskra kvenna, á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem fer nú fram í Ísrael. Eygló gerði sér lítið fyrir og bætti dagsgamalt Íslandsmet sitt í 100 m baksundi um tæpa sekúndu er hún synti á 57,42 sekúndum í gær. Ungverska sunddrottningin Katinka Hosszu vann gull með miklum yfirburðum en hún synti á 55,42 sekúndum. Önnur varð svo Alijca Tchorz frá Póllandi á 57,17 sekúndum.Sjá einnig: Eygló Ósk vann brons á Evrópumótinu „Ég var ekkert að hugsa um tímann. Fyrir mótið ætlaði ég mér að fara undir 58 sekúndur en það eina sem ég hugsaði um fyrir sundið var einfaldlega að gera mitt besta,“ sagði Eygló við Fréttablaðið í gær en hún var þá nýkomin af verðlaunapallinum. Gleðin var eðlilega mikil og heyrðist hreinlega á Eygló að hún var skælbrosandi allt viðtalið.Man ekki eftir sundinu „Ég man í raun ekki neitt eftir sundinu sjálfu. Einbeitingin var greinilega það mikil að það er eiginlega skýjað í minningunni,“ segir Eygló sem fylltist stolti við að sjá íslenska fánann fara á loft í verðlaunaafhendingunni. „Ég var að berjast gegn öllum líkamanum svo ég færi ekki að gráta. Ég get í raun ekki lýst þessu, enda framar öllum mínum væntingum. Ég er í skýjunum.“Sjá einnig: Besti árangur íslenskrar sundkonu Sterkasta grein Eyglóar er 200 m baksund og keppir hún í þeirri grein strax í dag. „Mitt aðalmarkmið fyrir mótið var að vera á meðal fimm efstu í 200 metrunum. Ég var í raun ekkert að hugsa um hundrað bakið, enda ekki mín aðalgrein.“ Eygló var lengi að átta sig á því að hún hafi unnið til verðlauna og þurfti að horfa á tímatöfluna í drykklanga stund áður en hún áttaði sig almennilega á því að bronsið var í höfn. En þar sem keppni í 200 m baksundi er á dagskrá strax í dag gat Eygló ekki leyft sér að njóta stundarinnar lengi. „Ég þarf að drífa mig út í laug til að synda mig niður og svo fer ég í slökun og fæ nudd,“ segir Eygló en ólíkt greininni í gær verða engin undanúrslit í 200 m baksundi – aðeins undanrásir en þaðan fara átta bestu beint í úrslitin.Æfingarnar borguðu sig Jacky Pellerin, landsliðsþjálfari í sundi, hrósaði Eygló mjög eftir afrek gærdagsins. „Hún var loksins að framkvæma allt það sem við höfum rætt á æfingum. Hún var virkilega einbeitt og er loksins að átta sig á því að hún getur þetta svo vel,“ segir Pellerin sem segir að æfingar síðustu vikna hafi skilað sér. „Við höfum verið að greina æfingar hennar, til dæmis með myndbandsupptökum. Eygló hefur síðustu tvær vikurnar unnið virkilega vel í sínum málum og þetta er afraksturinn.“ Ragnheiður Runólfsdóttir, sem var kjörin íþróttamaður ársins 1991, var fremsta sundkona landsins um árabil og náði sjöunda sæti í 200 m bringusundi á EM í Aþenu það árið. Það var besti árangur íslenskrar konu á stórmóti þar til í sumar, er bæði Eygló og Hrafnhildur Lúthersdóttir kepptu til úrslita á HM í 50 m laug fyrst íslenskra kvenna. Sund Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, landsleikur í fótbolta og NHL Sport Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, landsleikur í fótbolta og NHL Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Sjá meira
Eygló Ósk Gústafsdóttir braut blað í íþróttasögu Íslands þegar hún vann til verðlauna á stórmóti í sundi, fyrst íslenskra kvenna, á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem fer nú fram í Ísrael. Eygló gerði sér lítið fyrir og bætti dagsgamalt Íslandsmet sitt í 100 m baksundi um tæpa sekúndu er hún synti á 57,42 sekúndum í gær. Ungverska sunddrottningin Katinka Hosszu vann gull með miklum yfirburðum en hún synti á 55,42 sekúndum. Önnur varð svo Alijca Tchorz frá Póllandi á 57,17 sekúndum.Sjá einnig: Eygló Ósk vann brons á Evrópumótinu „Ég var ekkert að hugsa um tímann. Fyrir mótið ætlaði ég mér að fara undir 58 sekúndur en það eina sem ég hugsaði um fyrir sundið var einfaldlega að gera mitt besta,“ sagði Eygló við Fréttablaðið í gær en hún var þá nýkomin af verðlaunapallinum. Gleðin var eðlilega mikil og heyrðist hreinlega á Eygló að hún var skælbrosandi allt viðtalið.Man ekki eftir sundinu „Ég man í raun ekki neitt eftir sundinu sjálfu. Einbeitingin var greinilega það mikil að það er eiginlega skýjað í minningunni,“ segir Eygló sem fylltist stolti við að sjá íslenska fánann fara á loft í verðlaunaafhendingunni. „Ég var að berjast gegn öllum líkamanum svo ég færi ekki að gráta. Ég get í raun ekki lýst þessu, enda framar öllum mínum væntingum. Ég er í skýjunum.“Sjá einnig: Besti árangur íslenskrar sundkonu Sterkasta grein Eyglóar er 200 m baksund og keppir hún í þeirri grein strax í dag. „Mitt aðalmarkmið fyrir mótið var að vera á meðal fimm efstu í 200 metrunum. Ég var í raun ekkert að hugsa um hundrað bakið, enda ekki mín aðalgrein.“ Eygló var lengi að átta sig á því að hún hafi unnið til verðlauna og þurfti að horfa á tímatöfluna í drykklanga stund áður en hún áttaði sig almennilega á því að bronsið var í höfn. En þar sem keppni í 200 m baksundi er á dagskrá strax í dag gat Eygló ekki leyft sér að njóta stundarinnar lengi. „Ég þarf að drífa mig út í laug til að synda mig niður og svo fer ég í slökun og fæ nudd,“ segir Eygló en ólíkt greininni í gær verða engin undanúrslit í 200 m baksundi – aðeins undanrásir en þaðan fara átta bestu beint í úrslitin.Æfingarnar borguðu sig Jacky Pellerin, landsliðsþjálfari í sundi, hrósaði Eygló mjög eftir afrek gærdagsins. „Hún var loksins að framkvæma allt það sem við höfum rætt á æfingum. Hún var virkilega einbeitt og er loksins að átta sig á því að hún getur þetta svo vel,“ segir Pellerin sem segir að æfingar síðustu vikna hafi skilað sér. „Við höfum verið að greina æfingar hennar, til dæmis með myndbandsupptökum. Eygló hefur síðustu tvær vikurnar unnið virkilega vel í sínum málum og þetta er afraksturinn.“ Ragnheiður Runólfsdóttir, sem var kjörin íþróttamaður ársins 1991, var fremsta sundkona landsins um árabil og náði sjöunda sæti í 200 m bringusundi á EM í Aþenu það árið. Það var besti árangur íslenskrar konu á stórmóti þar til í sumar, er bæði Eygló og Hrafnhildur Lúthersdóttir kepptu til úrslita á HM í 50 m laug fyrst íslenskra kvenna.
Sund Mest lesið Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Sport Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Formúla 1 Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Enski boltinn Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Fótbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti Launaði greiðann og gaf liðsfélaganum sigurinn Formúla 1 Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, landsleikur í fótbolta og NHL Sport Fleiri fréttir Þýsk kona fylgt Íslandi um allt: „Stálu hjarta mínu“ Katrín Tanja hætt: „Frá dýpstu hjartarótum, takk fyrir“ Fyrrverandi lífvörður Schumachers reyndi að fjárkúga hann Guardiola: „Bjóst ekki við þessu frá fólkinu í Liverpool“ Slot heldur liðinu á jörðinni: „Skulum ekki missa okkur í gleðinni“ Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, landsleikur í fótbolta og NHL Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik