Síle einu marki frá því að komast í 16-liða úrslit Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. júní 2019 20:45 Vítaspyrna Franciscu Lara smellur í slá tælenska marksins. vísir/getty Síle vantaði eitt mark til að komast í 16-liða úrslit heimsmeistaramóts kvenna. Síle vann Tæland, 0-2, í lokaleik sínum í F-riðli en hefði þurft að vinna með þriggja marka mun til að komast áfram. Ef Síle hefði skorað eitt mark í viðbót hefðu þær farið í 16-liða úrslit á kostnað Nígeríu og mætt Þýskalandi. Francisca Lara á eflaust ekki eftir að sofa mikið í nótt en hún skaut í slá úr vítaspyrnu á 85. mínútu, í stöðunni 0-2.#CHI were only a missed penalty away from advancing to the knockout stages of their first-ever #FIFAWWCpic.twitter.com/uDcrWgDU7p— B/R Football (@brfootball) June 20, 2019 Staðan var markalaus í hálfleik en á 48. mínútu skoraði Waraporn Boonsing afar slysalegt sjálfsmark og kom Síle yfir. Þegar tíu mínútur voru til leiksloka kom Maria Urrutia síleska liðinu í 0-2 með skalla. Síle þurfti því aðeins eitt mark til að komast áfram en það kom ekki. Lokatölur 0-2, Síle í vil. Þetta var fyrsti sigur Síle á HM frá upphafi en hann dugði skammt. Liðið endaði í 3. sæti F-riðils með þrjú stig. Tæland tapaði öllum þremur leikjunum sínum með markatölunni 1-20. HM 2019 í Frakklandi
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti