Smávaxna fimleikadrottningin sem er að sigra heiminn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. ágúst 2016 14:29 Biles með gullmedalíuna sína. vísir/getty Bandaríska fimleikakonan Simone Biles er ein af stjörnum Ólympíuleikanna í Ríó til þessa. Þessi 19 ára fimleikadrottning, sem er aðeins 1,45 m á hæð, hefur slegið í gegn í Ríó og sýndi glæsileg tilþrif þegar bandaríska liðið vann öruggan sigur í liðakeppni áhaldafimleika í fyrradag. Biles á eftir að keppa á nokkrum greinum á Ólympíuleikunum og á eflaust eftir að bæta fleiri verðlaunum í safnið á næstu dögum. Það er þó ekki eins og Biles hafi skotist fyrst fram á sjónarsviðið á þessum Ólympíuleikum. Hún hefur verið í fremstu röð í fimleikaheiminum undanfarin ár og er sigursælasta Bandaríkjakonan í sögu HM með 14 medalíur, þar af 10 gull. Hún var jafnframt fyrsta konan sem vinnur þrjá heimsmeistaratitla í samanlögðum æfingum í röð.Biles hefur ótrúlega stjórn á líkama sínum.vísir/gettyBiles er talin ein besta fimleikakona allra tíma og Nastia Liukin, gullverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum 2008, segir að eins og staðan sé í dag sé hún ósigrandi. Öfugt við margt annað fimleikafólk er Biles mjög fjölhæf og sterk í mörgum greinum. Hún hefur t.a.m. unnið til gullverðlauna á HM í öllum greinum nema á tvíslá. Biles fæddist 14. mars 1997 í Columbus í ríkinu Ohio. Hún ólst upp hjá afa sínum og stjúpömmu í Texas en móðir hennar var ófær um að sjá um hana og systkini hennar vegna eiturlyfjafíknar. Föður sinn hitti hún aldrei. Afi og stjúpamma Biles ættleiddu hana og systur hennar árið 2003, sama ár og hún byrjaði að æfa fimleika, sex ára gömul. Þegar hún var átta ára byrjaði hún að æfa undir handleiðslu Aimee Boorman sem hefur verið þjálfari hennar allar götur síðan.Biles á eflaust eftir að bæta fleiri Ólympíumedalíum í safnið á næstu dögum.vísir/gettyBiles sýndi mikinn metnað fyrir íþróttinni og í stað þess að fara í menntaskóla var henni kennt heima. Þetta gerði Biles kleift að æfa meira og það bar svo sannarlega árangur, þótt hún viðurkenni að hafa fundist heimakennslan leiðinleg. Biles þreytti frumraun sína á HM árið 2013, þegar hún var aðeins 16 ára gömul. Og hún gerði sér lítið fyrir og vann til tveggja gullverðlauna. Biles varð m.a. fyrsta blökkukonan til að verða heimsmeistari í samanlögðum æfingum. Biles bætti um betur á HM 2014 þegar hún vann fern gullverðlaun og var þar með orðin sigursælasti Bandaríkjamaðurinn á HM frá upphafi með sex gullverðlaun. Sex gull urðu svo að 10 á HM 2015 þar sem Biles vann til fernra gullverðlauna. Biles er nú byrjuð að láta að sér kveða á allra stærsta sviðinu, sjálfum Ólympíuleikunum, og stjarna hennar skín skærar en nokkru sinnum fyrr.Hér að neðan má sjá skemmtilegan heimildaþátt sem ESPN gerði um Simone Biles og leið hennar á toppinn. Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin Fullt af möguleikum í þessu Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sjá meira
Bandaríska fimleikakonan Simone Biles er ein af stjörnum Ólympíuleikanna í Ríó til þessa. Þessi 19 ára fimleikadrottning, sem er aðeins 1,45 m á hæð, hefur slegið í gegn í Ríó og sýndi glæsileg tilþrif þegar bandaríska liðið vann öruggan sigur í liðakeppni áhaldafimleika í fyrradag. Biles á eftir að keppa á nokkrum greinum á Ólympíuleikunum og á eflaust eftir að bæta fleiri verðlaunum í safnið á næstu dögum. Það er þó ekki eins og Biles hafi skotist fyrst fram á sjónarsviðið á þessum Ólympíuleikum. Hún hefur verið í fremstu röð í fimleikaheiminum undanfarin ár og er sigursælasta Bandaríkjakonan í sögu HM með 14 medalíur, þar af 10 gull. Hún var jafnframt fyrsta konan sem vinnur þrjá heimsmeistaratitla í samanlögðum æfingum í röð.Biles hefur ótrúlega stjórn á líkama sínum.vísir/gettyBiles er talin ein besta fimleikakona allra tíma og Nastia Liukin, gullverðlaunahafi frá Ólympíuleikunum 2008, segir að eins og staðan sé í dag sé hún ósigrandi. Öfugt við margt annað fimleikafólk er Biles mjög fjölhæf og sterk í mörgum greinum. Hún hefur t.a.m. unnið til gullverðlauna á HM í öllum greinum nema á tvíslá. Biles fæddist 14. mars 1997 í Columbus í ríkinu Ohio. Hún ólst upp hjá afa sínum og stjúpömmu í Texas en móðir hennar var ófær um að sjá um hana og systkini hennar vegna eiturlyfjafíknar. Föður sinn hitti hún aldrei. Afi og stjúpamma Biles ættleiddu hana og systur hennar árið 2003, sama ár og hún byrjaði að æfa fimleika, sex ára gömul. Þegar hún var átta ára byrjaði hún að æfa undir handleiðslu Aimee Boorman sem hefur verið þjálfari hennar allar götur síðan.Biles á eflaust eftir að bæta fleiri Ólympíumedalíum í safnið á næstu dögum.vísir/gettyBiles sýndi mikinn metnað fyrir íþróttinni og í stað þess að fara í menntaskóla var henni kennt heima. Þetta gerði Biles kleift að æfa meira og það bar svo sannarlega árangur, þótt hún viðurkenni að hafa fundist heimakennslan leiðinleg. Biles þreytti frumraun sína á HM árið 2013, þegar hún var aðeins 16 ára gömul. Og hún gerði sér lítið fyrir og vann til tveggja gullverðlauna. Biles varð m.a. fyrsta blökkukonan til að verða heimsmeistari í samanlögðum æfingum. Biles bætti um betur á HM 2014 þegar hún vann fern gullverðlaun og var þar með orðin sigursælasti Bandaríkjamaðurinn á HM frá upphafi með sex gullverðlaun. Sex gull urðu svo að 10 á HM 2015 þar sem Biles vann til fernra gullverðlauna. Biles er nú byrjuð að láta að sér kveða á allra stærsta sviðinu, sjálfum Ólympíuleikunum, og stjarna hennar skín skærar en nokkru sinnum fyrr.Hér að neðan má sjá skemmtilegan heimildaþátt sem ESPN gerði um Simone Biles og leið hennar á toppinn.
Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin Fullt af möguleikum í þessu Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti