Góð viðbót en mikill vill alltaf meira Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. janúar 2017 07:00 Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ, á fundinum í gær. Vísir/Vilhelm Rétt ríflega 150 milljónum var úthlutað úr Afrekssjóði ÍSÍ í gær fyrir árið 2017 en um 100 milljónum á eftir að úthluta þegar nýr tímamótasamningur ríkis og Íþrótta- og Ólympíusambandsins tekur gildi í vor. Afrekssjóðurinn mun hækka um 100 milljónir króna á ári næstu þrjú árin og verður 400 milljónir þegar úthlutað verður fyrir 2019. Öll 26 sérsamböndin sem sóttu um styrk fengu úthlutun en þó mismikla eins og gefur að skilja. Sérsamböndin sjálf fá peningana en ekki einstakir íþróttamenn. Hæstu styrki hljóta þau sambönd sem eru með lið í lokamótum stórmóta. HSÍ fékk langmest eða 28 milljónir og körfuboltinn 18 milljónir.Karfan vill tvöfalt meira „Við erum bjartsýn á að fá stóran hlut af nýju 100 milljónunum sem verður úthlutað eftir íþróttaþingið. Við gerum ráð fyrir því að fá ekki undir 30-35 milljónum króna á þessu ári. Það eru 100 milljónir eftir og ég reikna með því að við fáum allavega 15-20 milljónir í viðbót,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, en KKÍ er á leið á lokamót með A-landslið karla líkt og HSÍ í næstu viku. Verkefni sambandanna á árinu eru svipuð og skilur körfuboltaformaðurinn því ekki alveg þennan tíu milljóna króna mun. „Þessar 35 milljónir eru það sem við þurfum og því gerum við ráð fyrir því að fá þær. Starfið okkar hefur verið öflugt á síðustu árum og vaxtarverkirnir vegna góðs árangurs á skömmum tíma. Þetta er því allt mjög kostnaðarsamt,“ segir Hannes.Tímamótasamningur var undirritaður í sumar um stóraukið fjárframlag ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi.Vísir/StefánNærri því sem þarf til Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, segir vinnu vegna nýs regluverks, er varðar úthlutun fjármagns þegar nýr samningur tekur gildi, standa yfir og vonast til að hún verði kláruð í kringum íþróttaþingið í maí. Hann fagnar því, eins og gefur að skilja, að geta sett meiri peninga í íslenskt afreksstarf og að tölurnar hækki á komandi árum. ÍSÍ færist nær því að geta úthlutað því sem til þarf miðað við útreikninga sem gerðir voru. „Við erum minni þjóð og getum aldrei jafnað framlag þjóðanna í kringum okkur. Við erum að komast eins nálægt því og við getum á þessari stundu. Við létum reikna út fjárþörfina sem er talin 650 milljónir króna að teknu tilliti til stærðar okkar. Það er mjög stórt skref að komast í 400 milljónir á næstu tveimur árum,“ segir Lárus.Fimleikafólkið ósátt Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, rauk út af fundinum þegar dagskrá var lokið en hún var verulega ósátt við úthlutunina. Fimleikarnir fengu sjöundu hæstu upphæðina. „Við erum að fá minna en samband [KSÍ] sem greiðir sínum keppendum bónusa. Þá fer maður að velta fyrir sér hvort afrekssjóður ÍSÍ sé hugsaður þannig að hægt sé að greiða bónusa með honum. Við viljum fá meira gagnsæi á hvernig þessu er úthlutað en þá yrðu allir sáttari,“ segir Sólveg við íþróttadeild. Hún vonast eftir skýrara regluverki þegar kemur að úthlutun eftir að nýr samningur tekur gildi. „Þegar kemur að þessu myndi ég kalla eftir skýrum reglum sem væru mjög gegnsæjar. Nú er sjóðurinn að stækka og það er ótrúlega mikið fagnaðarefni að það sé að gerast. Það má hrósa Íþrótta- og Ólympíusambandinu og forseta þess vel fyrir góð störf þar, en þegar maður sér þessa úthlutun núna hræðist maður svolítið hvað gerist. Gegnsæi númer eitt, tvö og þrjú mun breyta ótrúlega miklu,“ segir Sólveig Jónsdóttir. Aðrar íþróttir Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Maté hættir með Hauka Körfubolti Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Körfubolti Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sport Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin Fullt af möguleikum í þessu Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sjá meira
Rétt ríflega 150 milljónum var úthlutað úr Afrekssjóði ÍSÍ í gær fyrir árið 2017 en um 100 milljónum á eftir að úthluta þegar nýr tímamótasamningur ríkis og Íþrótta- og Ólympíusambandsins tekur gildi í vor. Afrekssjóðurinn mun hækka um 100 milljónir króna á ári næstu þrjú árin og verður 400 milljónir þegar úthlutað verður fyrir 2019. Öll 26 sérsamböndin sem sóttu um styrk fengu úthlutun en þó mismikla eins og gefur að skilja. Sérsamböndin sjálf fá peningana en ekki einstakir íþróttamenn. Hæstu styrki hljóta þau sambönd sem eru með lið í lokamótum stórmóta. HSÍ fékk langmest eða 28 milljónir og körfuboltinn 18 milljónir.Karfan vill tvöfalt meira „Við erum bjartsýn á að fá stóran hlut af nýju 100 milljónunum sem verður úthlutað eftir íþróttaþingið. Við gerum ráð fyrir því að fá ekki undir 30-35 milljónum króna á þessu ári. Það eru 100 milljónir eftir og ég reikna með því að við fáum allavega 15-20 milljónir í viðbót,“ segir Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, en KKÍ er á leið á lokamót með A-landslið karla líkt og HSÍ í næstu viku. Verkefni sambandanna á árinu eru svipuð og skilur körfuboltaformaðurinn því ekki alveg þennan tíu milljóna króna mun. „Þessar 35 milljónir eru það sem við þurfum og því gerum við ráð fyrir því að fá þær. Starfið okkar hefur verið öflugt á síðustu árum og vaxtarverkirnir vegna góðs árangurs á skömmum tíma. Þetta er því allt mjög kostnaðarsamt,“ segir Hannes.Tímamótasamningur var undirritaður í sumar um stóraukið fjárframlag ríkisins til afreksíþrótta á Íslandi.Vísir/StefánNærri því sem þarf til Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, segir vinnu vegna nýs regluverks, er varðar úthlutun fjármagns þegar nýr samningur tekur gildi, standa yfir og vonast til að hún verði kláruð í kringum íþróttaþingið í maí. Hann fagnar því, eins og gefur að skilja, að geta sett meiri peninga í íslenskt afreksstarf og að tölurnar hækki á komandi árum. ÍSÍ færist nær því að geta úthlutað því sem til þarf miðað við útreikninga sem gerðir voru. „Við erum minni þjóð og getum aldrei jafnað framlag þjóðanna í kringum okkur. Við erum að komast eins nálægt því og við getum á þessari stundu. Við létum reikna út fjárþörfina sem er talin 650 milljónir króna að teknu tilliti til stærðar okkar. Það er mjög stórt skref að komast í 400 milljónir á næstu tveimur árum,“ segir Lárus.Fimleikafólkið ósátt Sólveig Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands, rauk út af fundinum þegar dagskrá var lokið en hún var verulega ósátt við úthlutunina. Fimleikarnir fengu sjöundu hæstu upphæðina. „Við erum að fá minna en samband [KSÍ] sem greiðir sínum keppendum bónusa. Þá fer maður að velta fyrir sér hvort afrekssjóður ÍSÍ sé hugsaður þannig að hægt sé að greiða bónusa með honum. Við viljum fá meira gagnsæi á hvernig þessu er úthlutað en þá yrðu allir sáttari,“ segir Sólveg við íþróttadeild. Hún vonast eftir skýrara regluverki þegar kemur að úthlutun eftir að nýr samningur tekur gildi. „Þegar kemur að þessu myndi ég kalla eftir skýrum reglum sem væru mjög gegnsæjar. Nú er sjóðurinn að stækka og það er ótrúlega mikið fagnaðarefni að það sé að gerast. Það má hrósa Íþrótta- og Ólympíusambandinu og forseta þess vel fyrir góð störf þar, en þegar maður sér þessa úthlutun núna hræðist maður svolítið hvað gerist. Gegnsæi númer eitt, tvö og þrjú mun breyta ótrúlega miklu,“ segir Sólveig Jónsdóttir.
Aðrar íþróttir Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Óskar Hrafn opnar sig um Haugesund: Best að falla á eigið sverð Fótbolti Liverpool fékk slæmar fréttir fyrir risaleikinn Enski boltinn Gagnrýnir CrossFit: Flýja alla ábyrgð og láta aðra sjá um kostnaðinn Sport Maté hættir með Hauka Körfubolti Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Körfubolti „Ef þeim líkar ekki maturinn geta þeir drullað sér út“ Körfubolti Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sport Arne Slot: Hættuleg helgi fyrir Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin Fullt af möguleikum í þessu Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti