Konur í fjórum af sex efstu sætunum | Niðurstöður kjörs Íþróttamanns ársins 2016 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2016 21:30 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð þriðja í kjörinu. Vísir/Stefán Samtök íþróttafréttamanna gerðu upp keppnisárið 2016 í árlegu hófi sínu í kvöld. 24 félagsmenn Samtaka íþróttafréttamanna greiddu atkvæði að þessu sinni og var niðurstaðan tilkynnt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld var knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson kjörinn Íþróttamaður ársins en þetta er í annað skiptið sem hann hlýtur þessi verðlaun. Gylfi fékk 430 stig í kjörinu eða aðeins 40 stigum meira en sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir sem varð í öðru sæti. Munurinn hefur ekki verið minni á efstu tveimur í kjörinu í fimm ár. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð í þriðja sæti en hún fékk 47 stigum meira en Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði karlalandsliðsins í fótbolta. Sundkonan og Íþróttamaður ársins 2015, Eygló Ósk Gústafsdóttir, varð fimmta í kjörinu í ár og knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir tók sjötta sætið. Konur voru því í fjórum af sex efstu sætunum í kjörinu í ár. Miðvarðarpar íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason, voru næstir því að komast inn á topp tíu en Ragnari vantaði þó 17 stig til að slá út frjálsíþróttakonuna Anítu Hinriksdóttur. Karlalandsliðið í fótbolta var kjörið lið ársins 2016 af Samtökum íþróttafréttamanna en þetta var í annað árið í röð og í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem karlalandsliðið í fótbolta er valið lið ársins. Liðið fékk fullt hús í kjörinu í ár. Kosningin á þjálfara ársins var mjög jöfn og spennandi að þessu sinni. Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska handboltalandsliðsins, var kjörinn þjálfari ársins en hann fékk þó aðeins fimm stigum meira en Guðmundur Guðmundsson, þjálfari dönsku Ólympíumeistaranna í handbolta karla. Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta og þjálfari ársins 2015, varð síðan þriðji í kjörinu en hann var 13 stigum á eftir Degi. Nítján íþróttamenn fengu atkvæði í kjörinu að þessu sinni, tíu konur og níu karlar. Fimm lið fengu atkvæði og fjórir þjálfarar. Það er hægt að sjá hvernig stigin skiptust hér fyrir neðan.Íþróttamaður ársins 2016 (mest 480 stig): Hrafnhildur Lúthersdóttir, þrefaldur verðlaunahafi á EM í sundi og fyrsta íslenska konan til að keppa til úrslita í sundi á Ólympíuleikum ásamt Eygló Ósk Gústafsdóttur, varð önnur í kjörinu með 390 stig. Verðlaun Hrafnhildar á EM voru þau fyrstu hjá íslenskri sundkonu á stórmóti í 50 m laug. Í þriðja sæti varð kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir með 214 stig en hún vann sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum, sterkustu atvinnumótaröð í heimi. Hafði hún þar betur í baráttu við 500 aðra kylfinga sem hófu keppni á úrtökumótaröðinni. Ólafía Þórunn keppti einnig á Evrópumótaröðinni í golfi í ár. 1. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna 430 stig 2. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund 390 3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf 214 4. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna 167 5. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund 117 6. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna 100 7. Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar 80 8. Aron Pálmarsson, handbolti 65 9. Martin Hermannsson, körfubolti 57 10. Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir 45 11. Ragnar Sigurðsson, knattspyrna 28 12. Kári Árnason, knattspyrna 23 13. Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingar 16 14. Jón Arnór Stefánsson, körfubolti 7 15. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir 6 16. Irina Sazonova, fimleikar 3 17. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna 2 18. Dagný Brynjarsdóttir, knattspyrna 1 19. Birgir Leifur Hafþórsson, golf 1Lið ársins: Karlalandsliðið í knattspyrnu fékk fullt hús stiga í kjörinu, eftir frábært gengi á EM í Frakklandi. Liðið komst þar í 8-liða úrslit keppninnar og vakti heimsathygli fyrir frammistöðu sína. Liðið hefur einnig farið vel af stað í undankeppni HM 2018. 1. Karlalandslið Íslands í knattspyrnu 120 stig 2. Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu 62 stig 3. Karlalandslið Íslands í körfubolta 30 stig 4. Kvennalandslið Íslands í hópfimleikum 3 stig 5. Karlalandslið Íslands í handbolta 1 stigÞjálfari ársins (mest 120 stig): Árið 2016 var frábært ár fyrir íslenska þjálfara, sem náðu árangri á heimsmælikvarða. Dagur Sigurðsson varð efstur í jöfnu kjöri en hann gerði Þýskaland óvænt að Evrópumeisturum í upphafi ársins og fylgdi því svo eftir með því að vinna til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Ríó. 1. Dagur Sigurðsson 67 stig 2. Guðmundur Guðmundsson 62 3. Heimir Hallgrímsson 54 4. Þórir Hergeirsson 33 Fótbolti Íslenski boltinn Fréttir ársins 2016 Íþróttir Sund Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin Fullt af möguleikum í þessu Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sjá meira
Samtök íþróttafréttamanna gerðu upp keppnisárið 2016 í árlegu hófi sínu í kvöld. 24 félagsmenn Samtaka íþróttafréttamanna greiddu atkvæði að þessu sinni og var niðurstaðan tilkynnt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld var knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson kjörinn Íþróttamaður ársins en þetta er í annað skiptið sem hann hlýtur þessi verðlaun. Gylfi fékk 430 stig í kjörinu eða aðeins 40 stigum meira en sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir sem varð í öðru sæti. Munurinn hefur ekki verið minni á efstu tveimur í kjörinu í fimm ár. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir varð í þriðja sæti en hún fékk 47 stigum meira en Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði karlalandsliðsins í fótbolta. Sundkonan og Íþróttamaður ársins 2015, Eygló Ósk Gústafsdóttir, varð fimmta í kjörinu í ár og knattspyrnukonan Sara Björk Gunnarsdóttir tók sjötta sætið. Konur voru því í fjórum af sex efstu sætunum í kjörinu í ár. Miðvarðarpar íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, Ragnar Sigurðsson og Kári Árnason, voru næstir því að komast inn á topp tíu en Ragnari vantaði þó 17 stig til að slá út frjálsíþróttakonuna Anítu Hinriksdóttur. Karlalandsliðið í fótbolta var kjörið lið ársins 2016 af Samtökum íþróttafréttamanna en þetta var í annað árið í röð og í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem karlalandsliðið í fótbolta er valið lið ársins. Liðið fékk fullt hús í kjörinu í ár. Kosningin á þjálfara ársins var mjög jöfn og spennandi að þessu sinni. Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska handboltalandsliðsins, var kjörinn þjálfari ársins en hann fékk þó aðeins fimm stigum meira en Guðmundur Guðmundsson, þjálfari dönsku Ólympíumeistaranna í handbolta karla. Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta og þjálfari ársins 2015, varð síðan þriðji í kjörinu en hann var 13 stigum á eftir Degi. Nítján íþróttamenn fengu atkvæði í kjörinu að þessu sinni, tíu konur og níu karlar. Fimm lið fengu atkvæði og fjórir þjálfarar. Það er hægt að sjá hvernig stigin skiptust hér fyrir neðan.Íþróttamaður ársins 2016 (mest 480 stig): Hrafnhildur Lúthersdóttir, þrefaldur verðlaunahafi á EM í sundi og fyrsta íslenska konan til að keppa til úrslita í sundi á Ólympíuleikum ásamt Eygló Ósk Gústafsdóttur, varð önnur í kjörinu með 390 stig. Verðlaun Hrafnhildar á EM voru þau fyrstu hjá íslenskri sundkonu á stórmóti í 50 m laug. Í þriðja sæti varð kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir með 214 stig en hún vann sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum, sterkustu atvinnumótaröð í heimi. Hafði hún þar betur í baráttu við 500 aðra kylfinga sem hófu keppni á úrtökumótaröðinni. Ólafía Þórunn keppti einnig á Evrópumótaröðinni í golfi í ár. 1. Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna 430 stig 2. Hrafnhildur Lúthersdóttir, sund 390 3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, golf 214 4. Aron Einar Gunnarsson, knattspyrna 167 5. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sund 117 6. Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna 100 7. Júlían J. K. Jóhannsson, kraftlyftingar 80 8. Aron Pálmarsson, handbolti 65 9. Martin Hermannsson, körfubolti 57 10. Aníta Hinriksdóttir, frjálsíþróttir 45 11. Ragnar Sigurðsson, knattspyrna 28 12. Kári Árnason, knattspyrna 23 13. Fanney Hauksdóttir, kraftlyftingar 16 14. Jón Arnór Stefánsson, körfubolti 7 15. Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir 6 16. Irina Sazonova, fimleikar 3 17. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna 2 18. Dagný Brynjarsdóttir, knattspyrna 1 19. Birgir Leifur Hafþórsson, golf 1Lið ársins: Karlalandsliðið í knattspyrnu fékk fullt hús stiga í kjörinu, eftir frábært gengi á EM í Frakklandi. Liðið komst þar í 8-liða úrslit keppninnar og vakti heimsathygli fyrir frammistöðu sína. Liðið hefur einnig farið vel af stað í undankeppni HM 2018. 1. Karlalandslið Íslands í knattspyrnu 120 stig 2. Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu 62 stig 3. Karlalandslið Íslands í körfubolta 30 stig 4. Kvennalandslið Íslands í hópfimleikum 3 stig 5. Karlalandslið Íslands í handbolta 1 stigÞjálfari ársins (mest 120 stig): Árið 2016 var frábært ár fyrir íslenska þjálfara, sem náðu árangri á heimsmælikvarða. Dagur Sigurðsson varð efstur í jöfnu kjöri en hann gerði Þýskaland óvænt að Evrópumeisturum í upphafi ársins og fylgdi því svo eftir með því að vinna til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Ríó. 1. Dagur Sigurðsson 67 stig 2. Guðmundur Guðmundsson 62 3. Heimir Hallgrímsson 54 4. Þórir Hergeirsson 33
Fótbolti Íslenski boltinn Fréttir ársins 2016 Íþróttir Sund Mest lesið Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Handbolti Skýrsla Vals: Söguleg snilld Handbolti „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ Handbolti „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ Handbolti Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu Fótbolti „Sjúklega stolt af þessum hóp“ Handbolti Maté hættir með Hauka Körfubolti Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Fótbolti Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Enski boltinn Fleiri fréttir Skýrsla Vals: Söguleg snilld Ómar borinn af velli og HM gæti verið í hættu Félagar Þóris stálu stigi af Juventus á síðustu stundu „Skiptir okkur ofboðslega miklu máli að komast í þessa leiki“ „Sagði á bekknum að hún myndi klára þetta, sem hún gerði“ „Sjúklega stolt af þessum hóp“ „Ég held að við getum alveg staðið í Þjóðverjum“ Orri skoraði sjö í risasigri Maté hættir með Hauka Nítján íslensk mörk í öruggum sigri Kolstad Liðsfélagi Alberts hneig niður og leikurinn stöðvaður Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Víkingur sækir lykilmenn bikarmeistaranna Hollendingar á leið upp úr íslenska riðlinum „Þær eru svolítið þyngri“ Júlíus og Sveinn Aron skoruðu í lokaumferðinni Sanngjarn sigur Liverpool og meistararnir að heltast úr lestinni Þýsku meistararnir að ná vopnum sínum á ný Bellingham og Mbappé tryggðu Madrídingum sigur Arnar Birkir fór á kostum í sigri Færeysku stelpurnar náðu sögulegu jafntefli á EM McTominay tryggði Napoli fjögurra stiga forskot á toppnum Annar þáttur Kanans í kvöld: Jón Páll og Frank Booker voru miklir vinir Chelsea náði Arsenal að stigum en Tottenham tapaði stigum Draumadagur fyrir Rashford og Zirkzee: Amorim lestin lögð af stað Daníel Tristan með þrennu: Stuðningsmennirnir sungu nafnið hans Haukarnir kláruðu Kur og komust í 32 liða úrslit Ísak Bergmann skoraði og liðið fékk hjálp í lokin Fullt af möguleikum í þessu Skautadrottning með 197 hraðasektir á árinu Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik
Uppgjörið: Ísland - Úkraína 27-24 | Sögulegur sigur og stelpurnar okkar á leið í hreinan úrslitaleik Handbolti